HERRA KOLBERT > LEIKFÉLAG AKUREYRAR > 2006

Höfundur: David Gieselmann
Þýðing: Bjarni Jónsson
Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson
Leikmynd og búningar: Íris Eggertsdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinsson
Tónlist og hljóðmynd: Hallur Ingólfsson

Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Steinn Ingunnarson og Unnur Ösp Stefánsdóttir

UM VERKIÐ: Hver er herra Kolbert? Hver er með númer 26, sleppa chillíinu? Er Herra Kolbert í kistunni á stofugólfinu? Steindauður? Hver var með hvítlauks bolognese með eggi? Ef Herra Kolbert er dauður hver drap hann þá? Og hvernig kemur pizzusendillinn inn í þetta allt saman? Venjulegt matarboð hjá venjulegu fólki tekur óvænta stefnu og þegar kvöldið er liðið er allt breytt.

Herra Kolbert er verk sem hefur farið víða frá því það var frumsýnt við frábærar viðtökur í Royal Court leikhúsinu í London árið 2000. Framsæknustu leikhús Evrópu hafa sett verkið upp og hlotið lof gagnrýnenda og áhorfenda fyrir. Herra Kolbert hefur ekki látið staðar numið þar heldur lagt undir sig Ástralíu og Ameríku. Leikritið sameinar spennu og átök Hitchcocks, undarlegheit Pinters, fáránleika Ionescos og ómótstæðilegan húmor.

UM TÓNLISTINA: Eftir að hafa lesið handritið fékk ég strax þá brjálæðislegu hugmynd að blanda saman speed metal og 60's gleðitónlist. Allar skiptingar mjög hraðar og schitzophrenískar, óútreiknanlegar og óvæntar. Ég ákvað strax að nota engar klippingar heldur ná heild með því að taka hvert hljóðfæri í einni töku. Eitt það erfiðasta og skemmtilegasta sem ég hef gert.